Posts

Showing posts from July, 2013

Fegraðu líf þitt framhald.

Image
Já það er víða fegurð að finna í umhverfinu ég rakst á þessi fallegu lambagrös í hrauninu við Hítarvatn í vikunni og lyktin af þeim er svo góð, ég hef sett þau inn í silung með öðru í veiðiferð og grillaði svo silunginn það kom mjög gott bragð af lambagrasinu. Þegar mér líður vel þá skynja ég umhverfið allt öðru vísi og sé litina skýrar og finnst náttúran hreint kraftaverk og get endalaust dásamað hana og skoðað. Horft á stráin sveiflast í vindinum og fundist það alveg stórkostlegt, en ef ég er ekki vel upplögð þá tek ég ekki eins vel eftir þessari fegurð þótt hún sé allt í kringum mig,  Þessar kindur voru að bíta gras á meðan ég sat og prjónaði lopapeysu kannski úr ull frá frænku þeirra svolítið skrítið móment. Á meðan ég var við Hítarvatn kom nýtt tugl og það var ótrúlega fallegt að fylgjast með því rísa á himninum og við vorum ekki með úrin okkar á okkur því að það er orðin regla hjá mér í sumarfríinu að taka það af mér og reyna að njóta stund

Fjársjóður sem falin var og súpu grey !

Image
 Það er komið sumarfrí og það rignir og rignir og lítið hægt að gera í garðinum og þá er um að gera að finna sér einhver önnur verkefni t.d ganga frá peysum sem búið er að prjóna endi hér og spotti þar og svo fór ég í fatarherbergið og skoðaði hvað væri það að finna :) og setti í svartan poka það sem á að fara í Rauðakrossinn já manni þarf ekkert að leiðast. Ég fann þennan græna prjónakjól sem ég kláraði í firra vor og gekk svo frá innst í fataherberginu af því að það var að koma sumar og svo gleymdi ég bara að hann væri til en núna setti ég hann framar þannig að ég get notað hann í vetur..gaman, gaman  Kláraði þessa peysu í morgun en á eftir að kaupa rennilás í hana veit ekki hver á að fá hana það kemur bara í ljós. Ég verð eins og stöðvunarskyldu merki í þessari í  kápupeysu sem drifið var í að klára og mér verður örugglea hlýtt í henni næsta vetur og engin hætta að fólk sjái mig ekki :) Þessi kragi varð á vegi mínum þegar ég var að taka stöðuna á lopa bir

Fyrirmyndir !!

Image
Þessi mynd er á gömlum og fallegum kökudiski sem ég á og spurning hver var fyrirmyndin þegar þetta var málað var það vöndur í vasa eða sá málarinn þetta út um gluggan hjá sér? Það er nefnilega þannig að fyrirmyndir eru út um allt og oft erum við ekkert að hugsa út í það að við erum fyrirmyndir fyrir fullt af fólki  daglega.  Ég vaknaði í gærmorgun og langaði ekkert sérstaklega á fætur var löt og er að byrja í sumarfríi, veðrið ekkert sérstakt og ég ekki að fara eða gera neitt sérstakt í fríiu mínu, púff púff fú aumingja ég eða þannig og enginn vorkennir mér :) Hvað er hægt að gera þegar manni líður svona og er að farast úr sjálfsvorkun, jú það er alltaf eitthvað hægt að gera í því og ég valdi að fara á fætur dreif mig í sturtu og stökk af stað ( klæddi mig lofa) og ákvað að fara í Dómkirkjuna í Reykjavík. Ekki það að mig langaði bara að fara í messu heldur vissi ég af því að kona sem mér þykir mjög vænt um og ber mikla virðingu fyrir var að vígjast til prest þar og ég var svo hepp

Bölvun eða blessun ????

Image
Þessi mynd lýsir vel hvernig mér hefur liðið frá því að ég byrjaði á breytingarskeiðinu eini rauði og sveitti túlipaninn á enginu. Í mai 2012 deildi ég  minni upplifun af þessu skeiði í mínu lífi með fullum sal af konum á öllum aldri og  reyndi að sjá spaugilegu hliðarnar á þessari reynslu þótt ég hafi nú ekki alltaf getað það á þessum tíma. Ég ætla að deila með ykkur þessu erindi ég hef komist að það hefur ekki þótt smart að tala of mikið  um þessa hluti en núna er búið að opna mikið á umræðuna og stofnuð hefur verið síða á FB um þetta málefni. heyr heyr... þær eiga lof skilið. Þegar ég var 37 ára fór ég að finna fyrir líkamlegum og andlegum breytingum sem ég var ekki alveg sátt við en á þessum tíma var ég með stórt heimili og meðal annars með 2 ára tvíbura svo að ég skrifaði þessi einkenni bara á að ég væri svona þreitt, en ákvað svo að hitta kvensjúkdómalæknirinn minn og ræða þetta við hann. Hann tók vel á móti mér eins og alltaf og ég romsaði uppúr mér því sem á mér hv

Hamingja og Sátt !!!!

Image
Orðið hamingja merkir ‘gæfa, heill, gifta’ og í elsta máli einnig ‘heilladís, verndarvættur’. Það er sett saman úr orðunum hamur sem merkir ‘skinn, húð, gervi’ en einnig í eldra máli ‘fylgja, verndarandi’ og viðliðnum – ingja sem kominn er úr *(g)engja af sögninni að ganga , eiginlega ‘vættur sem gengur inn í ham eða gervi’.Þessa speki fékkst  á Vísindavefnum. Hamingja , sæla eða lukka er tilfinning fyrir gleði , ánægju og velferð . Hamingja er flókin tilfinning sem erfitt er að festa hendur á " segir á  Wikipedia " En hvað þýðir hamingja fyrir venjulegt fólk á venjulegum degi er það að vera sáttur, finna frið og líða bara vel í eigin skinni? Það eru sumir sem bíða eftir því að verða grennri, ríkari, finna maka, fá nýja vinnu og þá muni þeir verða hamingjusamir, en er það svo ? Það er til fólk sem  vill að aðrir gefi þeim hamingju,  en hún verður að koma innan frá og annað fólk getur aukið á  hana en það gerir ekkert við okkur til að við verðum hamin

A relaxed mind is a creative mind / meira af tepoka speki :)

Image
Það er alveg frábært að ég fæ hverja ábendinguna á fætur annari á tepokum þessa dagana, það er sem ég segi maður veit aldrei hvaðan gott kemur. Þessar myndir eru úr Grasagaðinum Það hefur komið fram hérna á síðunni að ég hef verið að stunda Mindfullness/ Árverkni og það er ekki vanþörf á því í mínu tilfelli því að ég er streitukona og þarf alltaf að vera á varðbergi ganvart því að hleypa mér ekki í þannig ástand og þess vegna fannst mér þessi orð á tepokanum svo góð áminning fyrir mig af því að ég hef ekki verið mjög dugleg undanfarið að nota það sem ég kann.  Þegar ég var á námskeiðinu fórum við í Grasagarðinn og gengum þar í þögn og vorum meðvituð hvert skref sem við tókum og það var ansi magnað að prófa þetta því að maður skynjar umhverfið á allt annan hátt og það er svo gaman að fylgjast með því hverju maður tekur eftir. Ég hef líka tekið eftir því að þegar streitan fer að stíga hjá mér er svo mikið umferðar öngþveiti í höfðinu á mér að það er ekkert pláss þar ti

Tepokar og speki

Image
The one who walks in a gentle way comes far.   Þessi orð fékk ég á tepoka og það er mikill sannleikur í þeim                                               Jarðaberjaplanta í blóma í garðinum hjá mér. Þeir sem vaða áfram í frekju komast kannski áfram í stuttan tíma en yfirleitt endar það ekki vel, en þeir sem fara í gegnum lífið með kærleikann að leiðarljósi komast þangað sem þeir ætla sér og geta verið samferða því fólki sem þeir kjósa af því að þeir eru ekki búnir að hrekja þá frá sér með frekju. Það er mikill munur á því að vera ákveðin eða frekur og það eru margir sem ruglast á því og svo eru aðrir sem halda að ef þeir gefi ekkert eftir þá séu þeir sigurvegarar en það er ekki þannig við þurfum alltaf í samskiptum að gera málamiðlun og vera sveigjanleg án þess að gengið sé á rétt okkar. Í samskiptum er það svo að einstaklinagarnir sá hlutina með sínum augum og sinni reynslu og túlka atburði eftir því og það er alltaf okkar sannleikur sem við sjáum og upplifum en það þarf s

Að vera lausnarmiðuð/ úrræðagóður

Image
Hvað þýðir það að vera lausnarmiðuð ? Og hvernig læri ég það? Fyrir nokkrum árum var ég í námi og fékk verkefni að finna 100 jákvæða hluti um sjálfa mig og við fengum stuttan tíma til að leysa þetta og ég hugsaði með mér þetta er óleysanlegt verkefni. En þegar ég settist niður og fór að skoða þetta þá var það fyrsta sem ég skrifaði á blaðið úrræða góð og hvað gerir svoleiðis fólk jú það finnur lausnir á verkefnum eða vandamálum og þá datt mér í hug að tala við alla sem í kringum mig voru þá börnin mín, vini, systur, vinnufélaga og bað þá að segja 5 jákvæð atriði um mig. það kom mér virkilega á óvart hvað þetta gekk vel og svo bætti ég  því við sem mér fannst jákvætt við mig og viti menn 102 atriði voru komin á blað og ég var ein af fáum sem skilaði þessu verkefni og það var svo skemmtilegt í leiðinni að sjá hvað fólkið í kringum mig sagði um mig og það var yfirleitt það sama en með mismunandi orðum og ég á þetta blað ennþá og ætla að varðveita það. Þetta er kallað á

þetta átti að verða lasagna :)

Image
Um daginn ætlaði ég að gera lasagna og áttaði mig svo á því þegar ég var byrjuð að það voru ekki til lasagnaplötur og þá datt mér í hug að gera bara platsagna og það varð bara ljómandi gott. 400 gr hakk 3 gulrætur 2 hvítlauksrif 1/2 stór laukur 4 soðnar kartöflur 2 tómatar salt, pipar tómatsósa sem ég bjó til ( hægt að nota pastasósu úr krukku) 1 tsk sojasósa Brúnaði hakk á pönnu og bætti pressuðum hvítlauk, söxuðum lauk, niðursneiddum gulrótum og kryddi út í og lét þetta malla aðeins, þá bætti ég 2 tómötum og soðnum kartöflum sem ég var búin að stappa saman við, að síðustu setti ég tómatsósuna og 1 tsk af soja sósu út í, leyfði þessu að hitna vel í gegn. Setti helminginn í eldfast mót og kotasælu ofan á og niðursneiddan tómat og klippti basiliku blöð ofan á og setti síðan restina af hakkinu ofan á og rifinn ost yrir allt. Þetta reyndist bara hinn besti réttur og ég á örugglega eftir að prófa mig meira áfram með svona platsagna. Þessa bók heimilfræ

Leifðu tárunum að koma !

Image
Leifðu tárunum að koma. Láttu þau vökva sál þína. -Eileen Mayhew Þegar við leggjum niður varnirnar, losum um spennuna sem við höfum  byggt upp út af  erfiðum aðstæðum sem við erum í þá koma oft tárin. En það eru tárin sem gera okkur mýkri, bræða mótstöðuna í okkur og sína hversu varnarlaus við erum. Við erum jú bara mannverur með tilfinningar og það er gott að geta grátið og lagt niður varnirnar. Mörgum finnst óþægilegt að gráta og eiga erftitt með það og svo eru aðrir sem lýsa sér að þeir séu bara algjörar tilfinningatuskur þeir megi bara ekkert aumt sjá þá fari þeir að gráta. Ég sá á fésinu að margir töluðu um það daginn eftir að minningar þátturinn um Hemma Gunn heitinn var sýndur að þeir hefðu bæði hlegið og grátið yfir þættinum og ég var ein af þeim og ekki þekkti ég hann neitt nema úr fjölmiðlum, það er kjarkur að mínu mati að tala bara opinskátt um að hafa grátið því það er enginn skömm að gera það. Í gegnum tíðina hef ég oft grátið og eins og ein góð vinkona mín sag

Hláturinn lengir lífið

Image
Hláturinn lengir lífið stendur einhversstaðar og ég er alveg viss um að það er satt, fyrir mig skiptir öllu máli að geta hlegið með fólki og ég hef líka verið dugleg að hlægja að sjálfri mér án þess að gera lítið úr mér. Ég var svo heppin að fara á Heilsuhælið í Hveragerði í byrjun árs og var þar í fjórar vikur til að efla heilsuna bæði líkamlega og andlega, þar hitti ég dásamlegt fólk sem var að efla sig eins og ég og kynntist sumum betur en öðrum eins og gengur. Ég var mest með þremur konum þarna og við gátum hlegið svo mikið saman og stundum í gegnum tárin og þegar ég lít til baka þá veit ég að þetta átti stóran þátt í batanum sem ég fékk þarna. Graslaukurinn í garðinum hjá mér er farinn að blómstra og hann verður svo fallegur og það má borða blómin. Þessi mynd var tekin í garðinum í gær ég veit ekki hvað þetta tré heitir en það er svo fallegt. Þessi mynd er af tré sem er orðið risa stórt og fallegt í garðinum og það heitir Heggur og það koma svo falleg blóm á það