Posts

Showing posts from July, 2014

Umhverfið okkar hefur áhrif á líðan.

Image
Þessar myndir eru teknar á markaði sem er haldin á föstudögum í Castelraimondo þar sem ég var á Ítalíu. Sólblómin voru að byrja að springa út um það leiti  sem ég var að fara heim og mér finnst þau svo falleg og einhvern veginn ekki hægt annað en að vera glaður í kringum þau. Það var líka gaman að sjá þau á ökrunum hvernig þau eins og við mannfólkið snéru sér eftir sólinni og svo hneigðu þau höfuð þegar fór að kvölda. Það voru margar aðrar tegundir af blómum þarna og það var svo ódýrt að fá sér vönd og ég er mjög hrifin af því að hafa blóm í kringum mig þau veita mér mikla ánægju hérna áður fyrr var ég mjög dugleg að kaupa handa mér blóm ef þannig lá á mér en er hætt því að mestu leiti núna af hverju ætli ég hafi gert það ?? Eigum við ekki að  láta það eftir okkur að fá okkur vönd ef þannig liggur á okkur ? Ef það veitir okkur  ánægju og gleði að hafa blóm í kringum okkur fáum okkur þá blóm verum ekki að bíða eftir því að einhver gefi okkur þau, við eigum það skilið

Rababara er hægt að nota á ýmsa vegu.

Image
Fór út í garð og tók upp nokkra stöngla af rababara og klippti smávegis af myntu í leiðinni. Var síðan að velta fyrir mér hvað ég ætti að gera við rababarann og fékk þá hugmynd að nota hann bara í kvöldmatinn og hafa tvíréttað þetta kvöldið pasta og graut. það sem fór í pastaréttinn: Tagliatelle sauð bara rest úr poka það voru 5 vöndlar 2 stilkar af rababara steinselja 1 laukur 2 dl rjómi parmasan ostur 1 tsk balsamic edik 1 tsk hrásykur Sauð pastað samkvæmt leiðbeiningum Skar rababarann og laukinn  Setti það á pönnu með smá olíu 1tsk eða svo og lét þetta malla við vægan hita þangað til það  var orðið mjúkt í gegn. Þá bætti ég rjómanum, pipar,sykri, og ediki út í og smá ost líka, lét sjóða í nokkrar mín og að síðustu  bætti ég steinseljunni út í. Lét renna af pastanu og setti sósuna út á. Og í lokin reif ég svo ost yfir pastað og þetta var mjög skemmtileg blanda og öðruvísi sósa en venjulega örlítið eins og s

Fegurðin kemur ekki bara innan frá.

Image
Nú er ég komin heim aftur eftir Ítalíu ævintýrið mitt og það á örugglega eftir að sjást  hérna á blogginu mínu. Það er búið að vera algjör þögn hjá mér hérna  vegna tækni örðuleika. Við erum svo góðu vön hérna heima á íslandi í þessum efnum og í skólanum var sambandi  frekar stopult og svo var ég bara alltaf á fullu að gera eitthvað skemmtilegt. Þessi mynd er tekin í næsta nágrenni við skólann. En ég bjó Castelraimondo  sem er í Marce héraði  og er alveg ótrúlega fallegur staður og það er ekki yfirfullt af ferðamönnum þar eins og á svo mörgum stöðum sem ég heimsótti á Ítlaíu. Fólkið þarna er líka mjög elskulegt og það er svo rólegt yfirbragð á öllu þarna. Þ etta skemmtilega tré var í garðinum fyrir utan skólann. Ég gæti vel hugsað mér að fara aftur þangað og marfir segja að þetta hérað sé hið nýja Toscani og það var gaman að koma þarna á meðan ekki er yfirfullt þarna. Á föstudögum frá 7-13 var markaður í bænum og það var mjög gaman að fara á hann en það