Posts

Showing posts from November, 2018

Það er ekki allt sem sýnist

Image
Enn og aftur er kominn sunnudagur og ég sest við skriftir, það sem mig langar að segja þennan morguninn er það er ekki allt sem sýnist. Og hvað á ég við með því jú við vitum ekki allt um fólk og ættum því að fara spaarlega með að dæma aðra og þeirra líf því að við vitum ekki hvað fer fram á  bak við lokaðar dyr og stundum líta hlutirnir einhvern veginn út en eru svo alls ekki svoleiðis. Mér er minnisstætt sem ég heyrði konu segja fyrir mjög mörgum árum síðan en hún hafði verið að hún hélt í góðu hjónabandi en svo kom maðurinn hennar heim dag einn í byrjun september og sagði henni að hann vildi skilnað , hún var algjörlega varnarlaus og hélt að allt væri í lagi hjá þeim.  Auðvitað var konan í sjokki yfir þessu og fór að kafa í hvað hefði gerst og hvað hún hefði gert rangt og allt það sem fólk fer í gegnum þegar það skilur , hún sagði að fólk hefði talaði um það eftirá að þau hefðu litið út fyrir að fera fullkomin hjón, sem þau kannski voru einhvern tímann en meira að s

Sunnudagar til sælu

Image
Ég elska að vakna snemma á sunnudögum og fá mér gott kaffi og meðlæti,  sitja í kyrrðinni og skrifa eða lesa. Í morgun vaknað ég mjög snemma veit ekki hvort það er aldurinn eða bara búin að hvílast nóg, enda skiptir það kannski ekki öllu máli. ég er að lesa nokkrar bækur núna eins og svo oft áður og ein af þeim heitir " Hamingjan eflir heilsuna" og hún fjallar um jákvæða sálfræði og í einum kaflanum er fjallað um hvað það er sem getur aukið vellíðan og þetta eru fimm atriði sem er talað um. 1. Ræktaðu samskipti:  Ég er að reyna mitt besta til að vera í góðum samskiptum við fólkið mitt, en stundum finnst mér ég ekki gera nóg og þá eykur það ekki vellíðan hjá mér, heldur fer ég að skamma mig fyrir að standa mig ekki betur, ég var að hugsa um þetta þegar ég vaknaði í morgun og hverning ég gæti bætt úr þessu. Ég verð að sætta mig við að það eru bara 24 tímar í sólarhring og 8 af þeim fara í vinnu og þá eru 16 eftir og það er oft talað um að ná 8 tíma svefni sé nauð

Fegurð í frostinu

Image
Í morgun var ég að setja mynd á instagram sem ég tók um síðustu helgi af frosnum polli og ég heillaðist af munstrinu sem var í frostinu.  Ég var með vinkonu minni til margra ára í sumarbústað á Flúðum og við fórum í bíltúr og m.a á Friðheima þar sem myndin var tekin. Þegar ég var að skrifa við myndina "fegurðin í frostinu" fór ég að hugsa um það sem við vorum að ræða í bústaðnum, hún var að tala um eitthvað sem gerðist fyrir langalöngu og ég komst að því hvað það er margt sem ég man ekki frá því að ég var yngri og ég velti því fyrir mér hvort það sé gott eða slæmt. Er það kannski fegurðin í frostinu að maður man ekki óþægilega hluti nema eins og ég höndla þá ? Er það frost og þegar kemur þýða þá get ég tekist á við hana smátt og smátt, sumt er svo sárt að það er óþægilegt að horfast í augu við það, en margt af því þarf að afgreiða og það hef ég gert. Er ekki bara allt í lagi að sumt sé í frosti? þarf maður að vita allt ? Er kannski bara gott að vita ekki allt og