Fegraðu líf þitt framhald.
Já það er víða fegurð að finna í umhverfinu ég rakst á þessi fallegu lambagrös í hrauninu við Hítarvatn í vikunni og lyktin af þeim er svo góð, ég hef sett þau inn í silung með öðru í veiðiferð og grillaði svo silunginn það kom mjög gott bragð af lambagrasinu. Þegar mér líður vel þá skynja ég umhverfið allt öðru vísi og sé litina skýrar og finnst náttúran hreint kraftaverk og get endalaust dásamað hana og skoðað. Horft á stráin sveiflast í vindinum og fundist það alveg stórkostlegt, en ef ég er ekki vel upplögð þá tek ég ekki eins vel eftir þessari fegurð þótt hún sé allt í kringum mig, Þessar kindur voru að bíta gras á meðan ég sat og prjónaði lopapeysu kannski úr ull frá frænku þeirra svolítið skrítið móment. Á meðan ég var við Hítarvatn kom nýtt tugl og það var ótrúlega fallegt að fylgjast með því rísa á himninum og við vorum ekki með úrin okkar á okkur því að það er orðin regla hjá mér í sumarfríinu að taka það af mér og reyna að njóta s...