Posts

Að undirbúa garðinn sinn ....Þótt úti snjói.....

Image
Nú er gott að huga að því hvað rækta á  í sumar, hvað er til af fræjum síðan í fyrra og hvað ég þarf að kaupa, og svo vakna ótal spurningar í kjölfarið á þessu og stundum hef ég verið svo óskipulögð og verið allt of sein að setja niður fræ til að fá einhverja uppskeru það árið. Núna ákvað ég að nota þær aðferðir sem ég kann og hef lengi kunnað í skipulagsmálum og viti menn þetta er bara mjög auðvelt ég gerði bara lista yfir það sem ég ætla að rækta og fyrir aftan nafnið setti ég dagsetingu hvenær fræið þarf að fara niður til að vera tilbúið að fara út í garð á réttum tíma þennan lista hengdi ég svo á ísskápinn í hann kíki ég nú reglulega. Hugsa sér ég er búin  að kenna markmiðssetningu í mörg ár og hún virkar líka fyrir mig ekki bara alla hina, skemmtilegt að vera sífellt að koma sjálfri sér á óvart og það eru örugglega ennþá ónýttir hæfileikar einhversstaðar á sveimi og ég hlakka til að kynnast þeim. En aftur að garðinum úti en ekki mínum innra garði þá eru nokkur atriði

Afgangar enn og aftur !!!

Image
Margir fá  osta í jólagjöf og við erum ein af þeim og oft nær maður ekki að borða þá alla um jólin, þá er hægt að nota þá um áramótin en við erum svo lítið heima við þá að við náum því ekki. Í janúar byrjun sat ég því uppi með osta sem ekki var hægt að geyma mikið lengur og frk. nýtin þurfti að skoða hvað hægt væri að gera við þá , ég hef oft  fryst osta og geymt þá þannig í einhvern tíma og notað svo í allskonar rétti og það hefur virkað vel. En nú ákvað ég bara að hóa saman börnunum og þeirra mökum og gera eitthvað gott úr þessu öllu saman og eldaði góða súpu og notaði ostana með sem meðlæti og rétti. Þessi ostur er franskur camenbert og hann setti ég  í fílódeig og ofan á hann fór villiblómahunang með pístasíum en ég fékk það í jólagjöf og það er mjög gott með ostum t.d. Pakkaði honum inn í deigið og skar svo út laufblöð og gerði síðan rós úr afgöngum og hann varð mjög fínn,  bakaði  hann í vel heitum ofni 180gr. þar til deigið var orðið fallega gullið á lit og ost

Markmiðasetning eða ekki ????

Image
Markmiðasetning er mjög góð í sjálfu sér og það er gott að hafa eitthvað til að stefna að,  ef það verður ekki íþyngjandi fyrir mann.... Sjálf hef ég bæði sett mér skammtíma og langtímamarkmið. Það er langt síðan ég hætti að setja mér markmið um að fara í megrun, orðið megrun gerir mig svo svanga að ég hugsa stöðugt um mat og súkkulaðikökur og fl. Það hefur reynst mér betur að nota orðið heilsuefling því að það er mun skemmtilegra orð og nær yfir fleira en mat. Það er  líka nauðsynlegt að gera eitthvað skemmtilegt t.d. leikhús, tónleikar, matarboð og fl. og ef við erum búin að vera lengi á leiðinni að fjölga þessu þá er gott að gera sér smá plan um það. Ég sjálf er orðin hálfgerður hellisbúi og  nenni bara helst ekki að fara úr húsi eftir að ég er komin heim úr vinnu, en það stendur nú til bóta og ég er búin að setja mér markmið um þetta og meira að segja farin að framkvæma líka ...húrra húrra..... Heima við finnst mér gott að setja mér fyrir verkefni og ég er hætt að ge

Eru ekki afgangar ekki líka matur ?...Frk nýtin svarar því.

Image
Ég hef oft talað um það  hérna að ég sé með söfnunaráráttu en ég held að að það sé kominn tími til að endurskoða þetta orðalag mitt og nota nýtni í staðinn.                                                    Fékk þessa mynd lánaða hjá Nóatúni. Það er ekkert að því að nýta hlutina hvort sem það eru matarafgangar, krukkur, dósir, kertaafgangar eða annað, þannig að  nú er ég ekki lengur með söfnunaráráttu heldur er ég orðin fröken nýtin. Núna um jólin eldaði ég mikið að mat eins og þorri landsmanna og allskonar meðlæti var keypt eða búið til og því var mikið um afganga og ég frysti eitthvað af þeim til eiga seinna. Síðan gerði ég talingu á því sem er til í frysti og ísskáp og skrifaði það skilmerkilega niður og hef það við hendina, en best að hafa bara miðann á ísskápnum og þá er hægt að x við þegar eitthvað er notað og þannig fylgst með hvað er til hverju sinni. Á aðfangadag er hefð fyrir því hjá mér og mínum að hafa nýjan svínabóg í matinn og núna vorum við frekar mörg þan

Janúar ....

Image
Hér fyrr á árum þótti mér janúar svo leiðinlegur og langur mánuður en undanfarin ár hefur það breyst og nú finnst mér þetta vera svo notarlegur tími.... Þegar ég gekk frá jóladótinu notaði  ég tækifærið og tók til í leiðinni í skúffum og skápum,  þetta var allt gert í rólegheitum og miklu betra að gera þetta eftir jólin að mínu mati.  Það er svo notarlegt að föndra, lesa eða bara  dúlla sér eitthvað þegar það er stormur úti og helst nenni ég bara ekki út úr húsi nema til að fara í vinnu og það er bara allt í lagi í bili ég fæ góða hreyfingu við að ganga og taka strætó og læt það nægja núna. Síðasta föstudag rifum við okkur upp með rótum og öllu og drifum okkur á nýárs tónleika hjá sinfó  og það var virkilega gaman, ég hef ætlað að fara í mörg ár en aldrei látið verða af því fyrr en nú.   Þetta var  partur af uppbyggingar áætlun ársins hjá mér en þar er að finna nokkur atriði m.a. að fara meira út á meðal fólks árið 2015 og næsta sem við gerum er að fara í bröns á v

Að blogga eða blogga ekki .....

Image
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samfylgdina á síðasta ári.                      Skál fyri nýju ári í sítrónu og agúrku vatni drukkið úr kristalglasi. Ég hef verið ansi léleg við að blogga undanfarið og það eru margar ástæður fyrir því tímaskortur og önnur verkefni, svo fannst mér ég ekki hafa frá neinu að segja þrátt fyrir að ég væri nú alltaf að baka, elda og bralla eitthvað heima við.  Þegar ég byrjaði að blogga 19. febrúar 2013 þá var ég í veikindafríi og fannst þetta góð leið til að hjálpa mér að halda dagbók og fylgjast með líðan minni,  það virkaði mjög vel fyrir mig og hvatti mig áfram og þá var tilgangnum náð ekki satt: Þessi mynd var máluð í listaþerapíu á Heilsuhælinu og táknar lífsgönguna mína. Veikindi mín voru bæði líkamleg og andleg og það má segja að ég hafi bara verið útbrunnin á líkama og sál og það er ekki góður staður til að vera á, þessu fylgdi mikil skömm af því að fólk eins og ég á ekki að lenda í svona veikindum....þvílíkt bull og hroki. Ei

Jóla streita !!!

Image
Það er gott að gefa sér tíma til að skoða hvernig streitu stigið er hjá okkur núna í byrjun desember, ég heyri marga segja að þetta sé erfiður tími fyrir þá og því fylgir streita, síðan eru aðrir sem upplifa þennan tíma sem skemmtilegasta tíma ársins. Í hvorum hópnum sem við erum er samt gott að vera meðvitaður um líðan sína og fylgjast með því hvort við erum nokkuð að fara fram úr okkur hvort sem það er í innkaupum eða stússi. Fyrir þá sem upplifa erfiðar tilfinningar á þessum árstíma er erfitt að heyra stöðugt hvað allt sé skemmtilegt,  það eru tónleikar og  jólahlaðborð og allkonar skemmtanir og það eru margir sem ekki hafa neinn til að fara með eða eiga ekki fyrir því. Margir  sem eiga erfitt núna hafa oft á tíðum upplifað erfiða hluti á þessum árstíma t.d í barnæsku eða ástvinamissi og svo eru aðrir sem hafa lítil fjárráð og það gerir mann dapran og þá er streitan á næsta leiti. Ég þekki persónulega báða þessa þætti fyrir mig voru jólin mjög erfiður