Posts

Rabarbara tilraunir ...

Image
Fyrsta uppskera sumarsins af rababara er komin og ég ákvað að skoða hvað ég gæti gert annað en að sjóða sultu úr honum, en auðvitað sauð ég líka sultu. Sultan er alltaf góð og hægt að borða hana og baka úr henni en það er líka gaman að prófa eitthvað nýtt.  Ég var að klára rababara sem ég átti frá því í fyrrasumar í frysti og gerði úr houm eftirrétt og það heppnaðist bara vel en ég gleymdi að taka myndir af þessari tilraun minni. Setti  rababarabita í pott og sauð  upp á honum til að mýkja hann, þetta fór  svo í botninn á eldföstumóti og eplabitar með. ( magnið af rababara fer bara eftir stærð mótsins sem við notum) Yfir það setti ég hvítt súkkulaði sem ég átti má vera suðusúkkulaði eða það sem til er hverju sinni, þar ofan á setti ég mulning eins og ég kalla það  og í hann fór c.a : 100gr. smjör, 1 bolli haframjöl, 2 msk hveiti, kókosmjöl og hakkaðar hnetur, muldi þetta vel saman og setti ofan á rababarann og eplin. Bakaði þetta í 20 mín eða þar til þetta var

Vetur kveður....þótt seint sé

Image
Þessi færsla átti að fara inn í apríl hélt að ég hefði gert það en hér er hún .... Nú er veturinn að kveðja og margir  hafa sagt að hann hafi verðið þeim erfiður vegna þess að veðrið hefur verið vont og það hefur áhrif á andlega líðan okkar hér á norðurhjara og þessi vetur hefur líka verið erfiður fyrir litlu vinina mína en þeir hafa verið mjög duglegir að sækja sér gott í goggin við eldhúsgluggann okkar. Þegar ég lít yfir veturinn þá er margt sem kemur upp í hugann, en ég verð nú að segja að veðrið hefur ekki haft mikil áhrif á mig í vetur og ég held að það sé vegna þess að ég hef ekki verið á bíl, hef komist allra minna ferða í strætó og klæði mig eftir veðrinu en ekki tískunni, maður verður svo vitur með árunum. Það er margs að minnast eftir þennan vetur bæði skemmtileg og annað sem hefur verið erfiðara eins og gengur, en það fylgir því að vera manneskja ekki satt. Í vetrarbyrjun hélt ég áfram í ítölsku náminu mínu og þar hitti ég fyrir skemmtilegt fólk úr ýmsum áttum se

Reiði ....hvaða áhrif hefur hún á okkur....

Image
 Bæld reiði getur eitrað sambönd jafn mikið og grimm orð. - Joyse Brothers.                                                     Fann þessa mynd  articles.baltimoresun.com Hvað er Reiði ? Jú það er tilfinning sem allir finna fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni. Ein elsta tilfinningin í þróun mannsins og viðbragð við ákveðnum atvikum sem við skynjum sem árás, hættu eða vanvirðingu. Reiði er missterk,  allt frá pirringi yfir í heift og það eru ýmis nöfn á þessu t.d. gremja, æsingur, ergelsi, önuleiki, biturð, geðvonska, beiskja og jafnvel hatur og það er mjög erfitt að vera fastur í einhverju svona munstri og fer illa með þá sem eru það. En reiði þjónar líka oft þeim  tilgangi að fela aðrar tilfinningar t.d. afbrýðisemi, kvíða, ótta og óöryggi og ef við verðum oft reið þá er kannski komin vísbending um að eitthvað sé að og að við þurfum að líta í eigin barm til að sjá af hverjum við bregðust svona oft reið við einhverju sem ætti ekki að hafa svona mikil áhrif á okkur. Oft

Handavinnu hvirfilbylur í húsinu !!

Image
Ég hef verið að  taka upp gamalt saumdót og ætla að reyna að klára það t.d dúk sem ég byrjaði á fyrir nokkrum árum síðan og var oft að grínast með það að ég væri að sauma í brúðarkistilinn en það hefur ekkert legið á að klára hann því ekkert bónorð hefur borist.... Nú má ég ekki kaupa mér neitt saumadót fyrr en þetta klárast en ég ætla að sauma mér páskapuntuhandklæði til að hafa í eldhúsinu, mér finnst svo gaman að svona dúlleríi eins og kærastinn kallar það. .  Fyrir 8 vikum síðan lærði ég að hekla og ákvað að byrja á teppi og þetta hefur verið svo gaman að ég þarf að fara í dúllu niðurtröppun... Í gær raðaði ég hluta af dúllunum á rúmið mitt til að fá tilfinningu fyrir því hvort fallegra sé að hekla þær saman með svörtu eða ljósu. Dúllurnar eru orðnar 150 og ég er ekki búin að ákveða hvort ég geri stórt teppi eða hvort ég nota afganginn í ný teppi jólagjafir ??? Litirnir eru svo fallegir og glaðir og þess vegna hefur verið svona gaman að hekla þ

Hver er ég og hvar er ég stödd ?

Image
 Á morgnana kíki ég stundum í bók sem ég er með í vinnunni,  það er svo skrítið hvað hún hittir oft á punta sem ég hef verið að velta fyrir mér og í morgun stóð þetta lauslega þýtt úr ensku: Mig langar að gera þig spennta yfir því hver þú ert, hvað þú ert og hvað þú hefur. Hvaða möguleika hefur þú ? Mig langar að hvetja þig að dreyma stóra drauma um hvað þú getur gert umfram það sem þú ert að gera í dag. -Virginia Satir- Ég átti mjög rólega helgi og var að dunda mér við ýmislegt prjónaði, heklaði, þreif og var að byrja að draga upp myndir til að setja á páska puntustykki sem ég ætla að sauma mér. Þegar ég er að dunda  svona þá á ég það til að hugsa of mikið og þetta var ein af þeim helgum, þessar hugsanir voru um allt mögulegt t.d aldurinn, framtíðina, hvar ég er stödd í dag, hvert langar mig í sumarfríinu  og hvað langar mig að fá út úr þessu lífi núna ? Þetta er eins og að vera með flugvélahreyfil í höfðinu allt á fullu og hugsanirnar þeytast til og

Að undirbúa garðinn sinn ....Þótt úti snjói.....

Image
Nú er gott að huga að því hvað rækta á  í sumar, hvað er til af fræjum síðan í fyrra og hvað ég þarf að kaupa, og svo vakna ótal spurningar í kjölfarið á þessu og stundum hef ég verið svo óskipulögð og verið allt of sein að setja niður fræ til að fá einhverja uppskeru það árið. Núna ákvað ég að nota þær aðferðir sem ég kann og hef lengi kunnað í skipulagsmálum og viti menn þetta er bara mjög auðvelt ég gerði bara lista yfir það sem ég ætla að rækta og fyrir aftan nafnið setti ég dagsetingu hvenær fræið þarf að fara niður til að vera tilbúið að fara út í garð á réttum tíma þennan lista hengdi ég svo á ísskápinn í hann kíki ég nú reglulega. Hugsa sér ég er búin  að kenna markmiðssetningu í mörg ár og hún virkar líka fyrir mig ekki bara alla hina, skemmtilegt að vera sífellt að koma sjálfri sér á óvart og það eru örugglega ennþá ónýttir hæfileikar einhversstaðar á sveimi og ég hlakka til að kynnast þeim. En aftur að garðinum úti en ekki mínum innra garði þá eru nokkur atriði