Posts

Sumarfríið búið !

Image
Nú er sumarfríið búið og mér finnst það gott vont, það er gott að komast í sína föstu rútínu og hitta samstarfsfólkið aftur en nú getur maður ekki stokkið eitthvað út í buskann ef þannig liggur á manni ( eins og ég hafi nú verið mikið að því) En nú tekur haust brjálæðið við hjá mér ég veit ekki hvað þetta er en ég breytist í óðan safnara þegar fer að hausta þá fer ég að tína ber og sulta, setja í krukkur og frysta allskonar góðgæti og ég hreinlega elska þennan tíma en nú bregður svo við að ég hef alveg verið til friðs og skil ekkert í því hvað sé að mér? Hvar er söfnunar áráttan ég lýsi eftir henni hér með það gengur ekki að eiga engan vetrarforða ég gæti soltið. Uppskeran úr garðinum er eitthvað rýr þetta árið enn sem komið er búin að taka upp einn hvítkálshaus og tvo brokkáli hausa það er allt og sumt en rauðkálið er hálf aumingjalegt en kannski rætist úr því það er ekki öll nótt úti enn. Rifsberin eru aðeins að byrja að roðna en blessaðir fuglarnir eru búnir að taka sinn ske

Maður er ekki gamall fyrr en ?

Image
Maður er ekki gamall fyrr en eftirsjá tekur við af draumum. - John Barrymore Já það er sannleikur í þessum orðum og við höfum örugglega öll gert eða ekki gert eitthvað sem við sjáum eftir það er partur af því að vera mannlegur, en ef við erum föst í eftirsjá og sjáum ekki það sem er framundan þá þurfum við að hugsa okkar gang. Að eiga sér drauma er eitthvað sem við þurfum öll og svo er misjafnt hvers konar draumar það eru getur verið draumaferð, nám, eignast kartöflugarð, búa í öðru landi, og svo mætti lengi telja, en þegar við höldum að við getum þetta ekki af því að við séum of gömul, eigum ekki pening, eða hvað það er sem við setjum fyrir okkur þá þurfum við  kannski að endurskoða hugsana ganginn hjá okkur. Ef ég er ákveðin í að láta verða að því að fara í drauma ferðina mína þá verð ég bara að byrja að spara í dag og kannski þarf ég að láta eitthvað annað á móti mér á meðan þetta er alltaf val hjá okkur og það er svo gott að hafa þetta val.  Hefur þú sest niður og hug

Hugleyðing um rósir og lífsins veg !

Image
Ég hef nú ekki verið dugleg að blogga upp á síðkastið vegna þess að ég hef verið upptekin í öðru, en ég hef saknað þess að setjast niður og skrifa því að það gefur mér mjög mikið. kannski verð ég duglegri núna og fer að nenna að elda aftur og deila því með ykkur. Ég fór með myndavélina út í garð og tók myndir af þessum rósum þær eru svo fallegar, en einhverstaðar stendur það er engin rós án þyrna og ég stakk mig þegar ég var að káfast í þeim og þannig er það líka með lífið það gengur upp og niður hjá okkur öllum og við þurfum að klífa fjöll og dali oft á tíðum en komumst á endanum á jafnsléttu ef við höldum áfram og gefumst ekki upp. Það er alltaf spurningin hvernig fer ég í gegnum hlutina og ætla ég að halda áfram eða bara leggjast niður og gefast upp, í garðinum mínum eru ótal plöntur og þær hafa svo sannarlega þurft að hafa fyrir því í sumar að lifa af út af veðrinu og mér finnst svo gaman að fylgjast með þeim og hversu seigar þær eru þær finna sína leið og það þurf

Mynta hvað gerir hún?

Image
Nú sprettur myntan sem aldrei fyrr í garðinum hjá mér hún hefur ekki náð sér á strik undan farin ár vegna þess að hún var alltaf í miklum skugga, mér er sagt að hún sé fljót að breiða úr sér og ég sé það eftir þetta sumar að það er rétt.  En hvað geri ég við alla þetta myntu?  Ég hef verið að lesa mér til um hana og í hvað og við hverju er gott að nota hana. Ég fann þetta á netinu og þar er talað um hana af mikilli virðingu sem lækningarjurt, eins og sést á þessari mynd, En þar er talað um að hún sé góð bæði útvortis og innvortis. Innvortis  Verk- og vindeyðandi, krampalosandi, vinsæl við flökurleika og uppköstum, örvar lifrarstarfsemi og styrkir gallblöðru. Fyrir viku síðan prófaði ég að nota hana við magakveisu og hún virkaði vel fyrir mig veit ekki hvort hún læknaði kveisuna en hún róaði magann, en ég drakk vatn sem hún var búin að liggja í. Útvortis. Hún er notuð í nuddolíur og krem til að auka blóðrás og súrefnisflæði í vöðvum og ég hef haft með mér í lengri

Fegraðu líf þitt framhald.

Image
Já það er víða fegurð að finna í umhverfinu ég rakst á þessi fallegu lambagrös í hrauninu við Hítarvatn í vikunni og lyktin af þeim er svo góð, ég hef sett þau inn í silung með öðru í veiðiferð og grillaði svo silunginn það kom mjög gott bragð af lambagrasinu. Þegar mér líður vel þá skynja ég umhverfið allt öðru vísi og sé litina skýrar og finnst náttúran hreint kraftaverk og get endalaust dásamað hana og skoðað. Horft á stráin sveiflast í vindinum og fundist það alveg stórkostlegt, en ef ég er ekki vel upplögð þá tek ég ekki eins vel eftir þessari fegurð þótt hún sé allt í kringum mig,  Þessar kindur voru að bíta gras á meðan ég sat og prjónaði lopapeysu kannski úr ull frá frænku þeirra svolítið skrítið móment. Á meðan ég var við Hítarvatn kom nýtt tugl og það var ótrúlega fallegt að fylgjast með því rísa á himninum og við vorum ekki með úrin okkar á okkur því að það er orðin regla hjá mér í sumarfríinu að taka það af mér og reyna að njóta stund

Fjársjóður sem falin var og súpu grey !

Image
 Það er komið sumarfrí og það rignir og rignir og lítið hægt að gera í garðinum og þá er um að gera að finna sér einhver önnur verkefni t.d ganga frá peysum sem búið er að prjóna endi hér og spotti þar og svo fór ég í fatarherbergið og skoðaði hvað væri það að finna :) og setti í svartan poka það sem á að fara í Rauðakrossinn já manni þarf ekkert að leiðast. Ég fann þennan græna prjónakjól sem ég kláraði í firra vor og gekk svo frá innst í fataherberginu af því að það var að koma sumar og svo gleymdi ég bara að hann væri til en núna setti ég hann framar þannig að ég get notað hann í vetur..gaman, gaman  Kláraði þessa peysu í morgun en á eftir að kaupa rennilás í hana veit ekki hver á að fá hana það kemur bara í ljós. Ég verð eins og stöðvunarskyldu merki í þessari í  kápupeysu sem drifið var í að klára og mér verður örugglea hlýtt í henni næsta vetur og engin hætta að fólk sjái mig ekki :) Þessi kragi varð á vegi mínum þegar ég var að taka stöðuna á lopa bir

Fyrirmyndir !!

Image
Þessi mynd er á gömlum og fallegum kökudiski sem ég á og spurning hver var fyrirmyndin þegar þetta var málað var það vöndur í vasa eða sá málarinn þetta út um gluggan hjá sér? Það er nefnilega þannig að fyrirmyndir eru út um allt og oft erum við ekkert að hugsa út í það að við erum fyrirmyndir fyrir fullt af fólki  daglega.  Ég vaknaði í gærmorgun og langaði ekkert sérstaklega á fætur var löt og er að byrja í sumarfríi, veðrið ekkert sérstakt og ég ekki að fara eða gera neitt sérstakt í fríiu mínu, púff púff fú aumingja ég eða þannig og enginn vorkennir mér :) Hvað er hægt að gera þegar manni líður svona og er að farast úr sjálfsvorkun, jú það er alltaf eitthvað hægt að gera í því og ég valdi að fara á fætur dreif mig í sturtu og stökk af stað ( klæddi mig lofa) og ákvað að fara í Dómkirkjuna í Reykjavík. Ekki það að mig langaði bara að fara í messu heldur vissi ég af því að kona sem mér þykir mjög vænt um og ber mikla virðingu fyrir var að vígjast til prest þar og ég var svo hepp