Hindranir í höfðinu á mér.

Í byrjun árs finnst mér oft gott að líta yfir farinn veg og skoða hverju ég hef áorkað á síðasta ári, og hvað langar mig að gera á þessu frábæra nýja ári 2018? Og þá vaknar spurningin er eitthvað sem ég sé eftir að hafa ekki reynt að gera á síðasta ári og af hverju reyndi ég það ekki?

Er það af því að einhver sagði mér að ég gæti það ekki eða var það bara ég sjálf sem sagði við mig
 " þú getur ekki gert þetta þú ert nú orðin of gömul eða eitthvað annað" Já það eru nefnilega við sem erum oft mesta hindrunin í okkar lífi  og stundum felum við okkur á bakvið annað fólk til að þurfa ekki að reyna eitthvað nýtt.




Er ekki betra að reyna og jafnvel mistakast, heldur en að segja seinna ég hefði átt að gera þetta eða hitt, ég held það, persónulega hef ég sem betur fer lært að mörgum af mínum mistökum og er í dag þakklát fyrir að hafa látið á ýmislegt reyna, en viðurkenni þó að það eru hlutir sem ég hefði viljað gera en gerði ekki.



En ennþá er tækifæri fyrir mig að gera ýmislegt á með heilsan leyfir og ég er mjög þakklát fyrir það að hafa ennþá brennandi áhuga á að læra nýja hluti og nú er það nýjasta hjá mér að fara á námskeið í að skrifa, en mig hefur lengi dreymt um að skrifa bók og á drög af einni í geymslu og spurning hvort ég fari að dusta rykið af henni.




Nú eru líka spennandi tímar framundan í fjölskyldunni það er von á nýjum fjölskyldumeðlim í febrúar og ég er mjög spennt að hitta hana, það verður mikið ævintýri og ég hef verið að prófa að prjóna lítil föt og það hefur gengið misvel en ekki ætla ég að gefast upp.

Ég held að niðurstaða mín sé að það er betra að reyna og mistakast, heldur en að sjá eftir að hafa ekki gert það og svo gengur oft bara vel og útkoman getur komið á óvart, það er mjög gaman að gefa sér tækifæri, við eigum það öll skilið.

Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Sveita og hjónabandssæla !!!!!

Kindalund og dásamleg stund !!!!