Betra að borða súrt en vera súr í bragði

Sítrónur eru yndislegar  bæta og kæta og svo eru þær svo fallegar að það er hægt að nota þær í allskonar skreytingar. En bara í fallegri skál á borði eru þær strax orðnar skreyting.



Um þessar mundir eru margir að drekka sítrónuvatn og það á að bæta heilsuna svo um munar og ég sjálf hef oft fengið mér  safa úr hálfri sítrónu í bolla og heitt vatn út í og drukkið, ef mér er að verða illt í hálsinum eða kvefuð þær eru mjög C-vítamín ríkar.


Nú til að þetta virki  þá verðurm við að drekka sítrónuvatn daglega í einhvern tíma til að finna muninn segja þeir sem eru að ráðleggja þetta , því að þetta virkar ekki ef við gerum þetta dag og dag eins og mér hættir til.


Ég fann þetta á veraldarvefnum :


1. Styrkir ónæmiskerfið. Sítrónur eru ríkar af C-vítamíni sem eru góðar í baráttunni við kvef. C-vítamín styrkir vefi líkamans.


2. Kemur jafnvægi á PH gildi. Sítrónur eru basískar hvort sem þú trúir því eða ekki. Af öllu nútímafæðinu sem við borðum (öllu hveitinu og sykrinum) verður líkaminn súr. Þess vegna þurfum við að leita leiða til að koma jafnvægi á PH gildið. Þess vegna er gott að drekka sítrónuvatn.


3. Hjálpar þér að grennast. Sítrónur eru með mikið af pectín-trefjum segja okkur að við séum södd. Auk þess hefur það verið sannað að þeir sem borða basískari mat eru fljótari að grennast. Að byrja daginn á sítrónuvatni kemur því jafnvægi á líkamsstarfsemina og ætti að hjálpa þér að halda þér á mottunni það sem eftir lifir dags.


4. Hjálpar til við eiturefnalosun. Heitt vatn örvar meltingarveginn og þarmaveggina sem gerir það að verkum að við losum eiturefni hraðar úr út líkamanum.
5. Virkar eins og náttúrulegt þvaglosunarlyf. Sítrónan hjálpar okkur að skola óæskileg efni út úr líkamanum og þvaglát verða tíðari sem gerir það að verkum að eiturefnin fara hraðar út úr líkamanum. Þvagfærin verða því enn heilbrigðari.


6. Hreinsar húðina. C-vítamínið minnkar hrukkur og minnkar bletti í húðinni. Sítrónuvatn hreinsar eiturefni úr blóðinu og hjálpar húðinni að verða eins falleg og hugsast getur.


7. Styrkir sogæðakerfið. Þessi bolli hjálpar þér að vökva hugann og kemur í veg fyrir ofþornun í nýrnahettunum. Þegar líkaminn er vökvaður verða nýrnahetturnar ekki lúnar sem gerir það að verkum að þú verður hressari og færð aukna orku. Það að drekka einn bolla af sítrónuvatni á dag getur gert róttæka breytingu á lífi þínu. Ekki láta það koma þér á óvart heldur njóttu þess.





Þessa uppskrift fann ég á:  http://paleogrubs.com og þetta á að vera mjög gott og hollt hvert sem við drekkum hann heitan eða kaldan í sumar.


Það sem fer í hann er :


2 sítrónur

5 litlir bitar af engifer

3/4 bolli söxuð basil lauf

3 tsk hunang

9 bollar sjóðandi vatn


Aðferð:

Skerið sítrónur í tvennt og skreistið safan úr þeim í könnu, passið að steinarnir fari ekki með.
 Síðan eru basil laufin söxuð og sett út í, þá engifer og síðast sítrónu helminganir sem við kreistum.

Hellið sjóðandi vatninu yfir og setjið svo hunangið út í og hrærið vel.
Þetta er látið standa  og látið kólna og þá er allt tekið úr vökvanum og ísmolar settir út í og borið fram.


Þetta eru c.a 9 glös.

Það er svo marg gott hægt að gera úr sítrónum að ég ætla baa að halda áfram á morgun með þær !

Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Sveita og hjónabandssæla !!!!!

Kindalund og dásamleg stund !!!!