Jólin eru handan við hornið :)
Já það eru að koma jól og allir eiga að vera glaðir en þannig er það nú því miður ekki, það eru margir sem kvíða þessum árstíma og vilja helst sofa hann af sér og það geta verið margar ástæður fyrir því, ástvinamissir eða eitthvað annað.
Ég er sem betur fer ekki lengur ein af þeim sem þjáist af jólakvíða, það eru samt ekki ýkja mörg ár síðan að ég fann fyrir honum síðast og það voru margar ástæður fyrir því. Sumt kemur frá æsku jólunum en þau voru stundum skrautleg vegna áfengisdrykkju og ýmisskonar uppákomum tengdu því. Kannski er það þess vegna sem ég fór oft offari á þessum árstíma jólin á mínu heimili áttu að vera fullkomin en það eru víst ekki til fullkomin jól :)
Þegar ég hugsa til baka þegar börnin mín voru lítil og ég var á útopnu að klára að skúra og skrúbba þegar allir voru búnir að fara í bað á aðfangadag, skipta á rúmunum, elda matinn og aldrei bað ég um hjálp heldur pirraði mig frekar á því að enginn hjálpaði mér . Ég hef örugglega ekki alltaf verið skemmtileg og ég man hvað ég var þreitt þegar maturinn var yfirstaðinn og búið að opna pakkana þá vildi ég helst fara að sofa.
Sem betur fer fékk ég vitið fyrir einhverjum árum síðan og slakaði á þessum kröfum og hef verið að vanda mig að njóta frekar en að þjóta og þótt eitthvað eitt horn hafi orðið útundan í skúringum skiptir það ekki lengur máli, jólasveininn er ekki með tékklista að merkja við hvað betur má fara.
Í gær var ég að njóta og að skreyta og setti jólatréð upp en það er aldrei skreytt fyrr en á þoláksmessu kvöldi heima hjá mér og mér finnst fínt að hafa þennan sið, við fengum góða vini í heimsókn og áttum ljúfa stund með þeim og það var bara frábært.
Hér áður fyrr fórum við mæðgur saman í friðargönguna fengum okkur svo bita í bænum og svo heim að skreyta tréð.
Ég veit ekki hvernig þessi Þorláksmessa verður en ég er ákveðin í að reyna að njóta hennar sem best þegar ég er búin að vinna í dag.
Gleðileg jól og hafið það sem allra best um hátíðina sem endranær.
Þessar skemmtilegur myndir fann ég á Better Homes & Gardens
Comments