Alltaf gaman að gera fínt hjá sér !!

þessi fallega skreyting var á hótelinu sem við vorum á í Bratislava og það er hægt að gera svo margt fallegt og skemmtilegt úr því sem er í náttúrunni.

Ég tók um daginn reyniber og frysti til að nota í skreytingar um jólinn og ég hef gert þetta undanfarin ár með góðum árangri.


þessa skemmtilegu mynd fann ég á Visit thelilaclobster.blogspot.com 

 Þett er mjög auðveld skreyting og svo er hægt að borða hneturnar :)

þetta er líka skemmtilegt en kaffibaunir eru bara svo dýrar hérna að ég mundi ekki tíma að setja þær í kertakrukku en það er gæt að nota gularbaunir eða vera með steina og sand sem er í náttúrunni.


Þessi eru líka falleg og það er hægt að fá þessi flotkerti í IKEA. Ég var með mynd um daginn af flotkertum og reyniberjum í krukkum kom mjög vel út þegar ég var búin að kveikja á þeim.
Um að gera að láta hugmyndaraflið leika lausum hala...Góða skemmtun.

Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Sveita og hjónabandssæla !!!!!

Kindalund og dásamleg stund !!!!