Enn getur náttúran að komið mér á óvart !!!


Ég tók þessa mynd eitt kvöldið þegar sólin var að setjast, þessi fallega sköpun getur endalaust gert mig agndofa og ég er svo glöð og þakklát fyrir að vera á lífi og geta notið þess að horfa á þetta.


Ég var að barma mér hérna um daginn  hversu léleg uppskeran úr garðinum hjá mér var í sumar en það var þó smá og maður skildi ekki vanþakka það :) Og  það er um að gera að borða grænmetið meðan það er nýtt og ferskt.
Ég ákvað að prófa að gera gratín úr rófum og blómkáli og sjá hvernig það kæmi út.





Uppskriftin:

1 blómkálshöfuð meðal stórt
2 litlar sætar rófur 
1/2 stór dós af kotasælu
2 dl. rjómi ( notaði matvinnslu rjóma)
2 msk gult sinnep
3 tsk karri
salt, pipar
rifinn ostur


Byrjaði á því að sjóða grænmetið í 5-8 mín. 


Setti kotasæluna í skál og karrí, salt og pipar út í 


síðan fór sinnepið út í


 að síðustu fór rjóminn saman við og ég hrærði þessu öllu saman


Smurði eldfast mót með olíu og setti rófurnar og blómkálið í formið og setti kotasælublönduna ofan á


Því næst stráði ég rifna ostinum yfir þetta og setti þetta í heitan ofn 180 gr. til að byrja með og lækkaði svo hitann.


Tók þetta svo út þegar það var orðið fallega gullið hefur verið c.a 15-20 mín gleymdi að taka tímann
En þetta er mjög gott með mat en ég notaði þetta bara sem kvöldmat þetta kvöld og þetta var yndilslega gott.


Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Sveita og hjónabandssæla !!!!!

Kindalund og dásamleg stund !!!!