Stolt til hvers er það notað?


Það er gott að vera stoltur af sér og sínum en þegar stoltið fer að þvælast fyrir okkur verðum við eitthvað að skoða það. Er mitt stolt að koma í veg fyrir eitthvað, t.d samskipti við einhvern eða að ég geri eitthvað sem er jafnvel gott fyrir mig og aðra?

Það var sagt við mig fyrir mörgum árum síðan " þú étur ekki stoltið úr þér eða fæðir barnið þitt á því " þetta var sagt í samhengi við að ég vildi ekki þiggja hjálp af því að ég var svo stolt, en átti varla fyrir mat ofan í mig og son minn, ég sá að mér drengsins vegna  og þáði hjálpina og það var bara allt í lagi.

Ég hef farið í gegnum nokkur svona tímabil í mínu lífi þar sem stoltið hefur verið að þvælast fyrir mér, en sem betur fer hefur mér batnað í þessu eins og svo mörgu öðru sem hrjáði mig á yngri árum, það sem kenndi mér hvað mest var þegar ég reifst við föður minn sem var mjög veikur alkóhólisti og var stundum svolítið ruglaður vegna þess en ég skildi það ekki þá, þetta var 198og eitthvað og hann bar upp á son minn rangar sakir og ég varð mjög reið út í hann. Pabbi reyndi að hafa samband en ég vildi ekki tala við hann " ég hef nú mitt stolt " sagði ég alltaf. Þetta gekk svona í marga mánuði en svo hitti ég hann við jarðarför úti á landi og hann heilsaði mér og ég ákvað að kingja stoltinu og  tala við hann, þegar við kvöddumst sagði hann við mig"  við skulum svo endilega vera í sambandi fljótlega ". Tíminn leið og ég var ekkert búin að gera í þessu man ekki náklvæmlega hversu langur tími þetta var en ég var á leiðinni niður á tjörn einn daginn með dóttur mína þegar ég fékk hugskeyti um að ég ætti nú að fara og heimsækja pabba og sleppa tjarnarferðinni og ég gerði það.

Við pabbi ákváðum að heimsækja systur hans sem var nýlega flutt í bæinn og hjá henni vorum við í nokkra klukkutíma og áttum skemmtilega stund og ég hafði ekki séð hann pabba svona glaðan og skemmtilegan í mörg ár. Ég skilaði honum heim og kvaddi hann og þakkaði fyrir góðan dag og sagði við hann hversu glöð ég væri að við hefðum gert þetta saman og hann sagðist vera mjög ánægður með daginn líka.
 Stuttu seinna dó hann þetta var í júní fyrir tæpum 30 árum síðan og ég er svo þakklát fyrir að hafa hlustað á innæið mitt og ekki látið stoltið standa lengur í vegi fyrir samskipti við hann og að þetta hafi verið okkar síðustu stundir saman í stað þess að ég hafi varið mitt misskilda stolt í stað þess að sitja kannski enn með tilfinninguna ég hefði átt að!

Það er hollt fyrir okkur öll  að skoða inn á við af og til og taka stöðumat á okkur sjálfum og það er gott ef við finnum fyrir stolti yfir því sem vel er gert hjá okkur og öðrum sem eru okkur nákomnir, stundum finnum við líka fyrir þjóðarstolti t.d. þegar landsliðunum okkar gengur vel í keppni og við getum líka fundið fyrir stolti yfir afreksfólki sem við þekkjum ekkert persónulega.

Látum við misskilið stolt varna því að við séum  í samskiptum við einhvern sem er okkur kær af því að einhvern tímann var eitthvað sagt sem mér mislíkaði ? Við vitum aldrei hvað við höfum lagnan tíma með þeim sem við elskum þess vegna er gott að nota tímann vel og vanda sig í samskiptum og segja það upphátt þegar við erum stolt af þeim ekki geyma það til betri tíma þá kannski gleymist það.

Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Kindalund og dásamleg stund !!!!

Sveita og hjónabandssæla !!!!!