Kjúklingur og kærleikur :)

Það er alltaf þægilegt að eiga kjúklingaleggi í frysti því að það er svo margt hægt að gera úr þeim, ég bjó til rétt sem ég hef aldrei gert áður og hann heppnaðist bara vel, set uppskriftina hérna inn og vona að ég muni hana en ef ég skrifa ekki niður jafnóðum og ég geri eitthvað í eldhúsinu þá er það oft bara farið.

Uppskrift:

10 kjúklingaleggir
spagettí 1/3 úr pakka
5 hvítlauksrif
5 kartöflur
2 dl. sweet chillisósa
3 dl. rjómi
rifinn ostur

Kjúklingaleggir settir í ofnpott og sósunni hellt yfir og  hvítlauksrifin sett úti í,
kartöflurnar skornar í bita og settar í pottinn og rjómanum hellt yfir.
Þetta var í klukkutíma í ofninum á 150  í lokin setti ég grillið aðeins á til að fá fallega húð á kjúklinginn.
Spagettí soðið samkvæmt leiðbeiningum og vatnið láta renna af því eftir suðu, tók kjúklinginn upp úr pottinum, það var komin svo góð sósa úr soðinu og rjómanum í pottinn og spagettíið fór út í hana og síðan var osturinn settur yfir og hrært varlega saman og kjúklingabitarnir settir yfir. Það er gott að bera þetta fram með góðu grænmetis salati að eigin vali.



Þetta puntuhandklæði á myndinni var ég að klára að sauma og á eftir að setja blúndu og falda það og þá er það tilbúið. Systir mín kærleiksrík gaf mér það þegar við fórum í sumarbústaðinn hennar í fyrra og það er búið að vera gaman að telja það út og sauma og sjá hvernig myndin kom smátt og smátt í ljós.
Þannig er það líka með kærleikann ef við gerum eitthvað fallegt fyrir einhvern þá kemur það til baka til okkar á einhvern hátt.  En það er ekki þar með sagt að ég ætlist til þess að fá endurgreiddan kærleikan sem ég gef en það er bara alltaf þannig að ef ég kem vel fram við einhvern að ég fæ það til baka og oft á svo skemmtilegan og óvæntan hátt.
Við þurfum ekki að vera feimin við að sýna kærleika og getum gert það á svo margan hátt og þótt við séum ekki að faðma ókunnugt fólk í tíma og ótíma þá er bara eitt lítið bros oft nóg til að láta öðrum líða vel og okkur sjálfum í leiðinni. ég hef verið svo heppin að þekkja mikið af góðu og kærleiksríku fólki á minni lífsleið og það er ekki sjálfsagt mál langt því frá.  Við vitum oft ekki af hverju fólk er pirrað og kemur ekki vel fram og það getur verið svo margt sem býr þar að baki og af því að ég að minnsta kosti er ekki hugsanalesari og veit ekki út af hverju þessi framkoma stafar þá hef ég reynt að venja mig bara á að nota aðgát skal höfð í nærveru sálar, en það þýðir samt ekki að ég láti vaða yfir mig en ég er búin að komast að því að ég þarf ekki alltaf að eiga síðasta orðið ( þetta tók mörg ár ).

Og að lokum læt ég fylgja orð sem Sófókles sam var uppi 496-406 f. krist sagði og þau eiga ennþá vel við: SÁ SEM KANN AÐ ENDURGJALDA GÓÐVILD ER ÓMETANLEGUR VINUR.

Comments

Popular posts from this blog

Gúrka, gúrka, gúrka

Sveita og hjónabandssæla !!!!!

Þurrkun og frysting á kryddjurtum