Posts

Sunnudags hugleiðing í 101 Reykjavík

Það er skrítin tilfinning að setjast niður og byrja að blogga aftur það hefur svo margt gerst síðan síðast ég átti frábært ár 2016 en þá náði ég þeim merka áfanga að verða sextug og líka að verða langamma sem er frábært og hann er yndislegur drengur hann Máni minn og hún mamma hans hún Sif. En svo í byrjun árs 2017 þá flutti ég að heiman og byrjaði nýtt líf og þegar ég lít til baka á þessi ár sem ég átti í Mosó þá er ég þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem ég á þaðan og ætla að varðveita þær. það er leitt að árin okkar urðu ekki fleiri þar og að ég náði ekki að reisa gróðurhúsið sem ég ætlaði að dunda mér í þegar ég færi á eftirlaun en svona er lífið stöðugt að koma manni á óvart. Núna bý ég í 101 Rvk í blokk og í fyrsta skiptið á ævinni bý ég alveg ein og það er skrítin tilfinning að vera orðin sextug og byrja upp á nýtt, og ég veit að það í mínu valdi að gera það besta úr því sem ég hef og ég er alveg ákveðin í því að verða ekki bitur kona sem kennir einhverjum öðrum um hver

Viðburðarríkt ár 2016 fyrsti hluti

Image
Það er ekkert búið að vera neitt smá gaman hjá mér þetta árið ég varð sextug í sumar og því var fagnað í mörgum löndum. Það byrjaði í Dublin en þangað fórum við í janúar að heimsækja Nonna minn og vorum þar eina helgi og það var mjög gaman að koma þangað og ég er alveg til í að koma þangað aftur að sumri til. Það er marft að sjá t.d Trinity College en hann var stofnaður 1592 og þar hafa margir gengið um gangana og lesið og lært, þetta er mjög merkileg bygging,írska fólkið er vinsamlegt og mjög líkt okkur íslendingum enda sagt að við séum með írskt blóð í æðum það voru líka þekkt ljóðskáld sem bjuggu í Dublin eins og t.d  George Bernard Shaw, Yeats og fleiri. Það voru skemmtilega skreytt hús í Dublin tilvitnanir í ljóð skálda sem þar bjuggu einu sinni. Þarna erum við Nonni í borgartúr Pétur var með okkur en hann er eitthvað myndfælinn gaman að fara og sjá borgina í svona túristastrætó.   Þetta er tilvitnum sem ég hef oft heyrt og það er alveg víst að það er eitthvað til