Sjóða, frysta og búa í haginn fyrir veturinn.
Ég hef örugglega sagt það hérna oft áður að ég hreinlega elska haustið og það eru margar ástæður fyrir því, litirnir eru svo fallegir, það er farið að rökkva og gaman að kveikja á kertum og svo fær söfnurnar áráttan í mér að njóta sín. Það er svo gaman að fara út í garð og taka upp allskonar grænmeti og kryddjurtir og búa í haginn fyrir veturinn. Þá er mikill hamagangur í eldhúsinu hjá mér og ég brosi út af eyrum og það er allt út um allt en þetta hefst nú allt á endanum. Ég er alltaf jafn hissa og glöð þegar ég tek upp grænmetið mitt að hausti, þessi pínu litlu fræ sem ég setti niður í vor eru orðin að ætu grænmeti og það er svo gott svona nýtt ..nammm.nammm. Og uppskernan er alltaf meiri en ég geri ráð fyrir og þá er gott að gefa með sér og reyna að vera duglegur við að borða þetta á meðan það er ferskt. Ég hafði eitthvað mistalið blómkálið hjá mér og fékk fleiri hausa heldur en ég átti von á ( næsta sumar verður meira ...